Við erum farin að finna meira og meira fyrir skammdeginu og mörg okkar eigum erfitt með komandi tíð - þar á meðal plönturnar okkar. Hér eru nokkrar plöntur sem lifa auðveldlega af myrkustu dagana og virka einnig vel inn á bað- og svefnherbergi - þar sem er gluggalaust eða lítið um birtu.
Calathea gengur einnig undir nafninu 'fiskibeinaplantan'.
mbl.is/Plantorama
Aglaonema er til með grænum sem og ljósrauðum blöðum og hentar vel í baðrými.
mbl.is/Getty images
Dieffenbachia er græn og væn planta sem drekkur mikið en þolir ekki mikla sól.
mbl.is/Getty Images
Mánagull eða Scindapsus, er hengiplanta og unir sér vel í rökkrinu.
mbl.is/Unsplash
Ef þú ert sá/sú sem átt það til að gleyma að vökva, þá er Sansevieria, plantan fyrir þig - því hún þolir að þorna upp á milli.
mbl.is/Ellos