Hér er drykkur sem kveikir á jólaandanum. Þessi unaðsblanda smakkast af piparkökum og rommi - eða drykkur sem leysir hið klassíska glögg af hólmi.
Drykkurinn sem leysir jólaglögg af hólmi
- 5 cl sterkt romm
- 9 cl heitt vatn
- 1 msk. butter-batter (sjá uppskrift fyrir neðan)
- Stjörnuanís og kanilstöng til skrauts
Butter-batter
- 250 g mjúkt ósaltað smjör
- 250 g sykur
- 250 g dökkur hrásykur
- 500 g vanilluís
- 1 tsk. kanill
- 1 msk. stjörnuanís
- 1 msk. negull
- 1 msk. múskat
Aðferð:
- Butter-batter: Blandið öllum kryddum og hvíta sykrinum saman í blandara og hrærið þar til massinn er orðinn einsleitur. Bætið þá hrásykrinum saman við og blandið saman. Blandið mjúku smjörinu saman við og því næst kemur vanilluísinn. Hellið blöndunni í krukku og setjið í kæli.
- Drykkurinn: Blandið heita vatninu saman við butter-batter þar til það leysist upp. Bætið þá rommi saman við og hrærið. Skreytið drykkinn með stjörnuanís og kanilstöng.