Bökum og skreytum fyrir jólin - það er gaman!
mbl.is/Pinterest
Hér færum við ykkur átta góð ráð við bakstur og byggingu á piparkökuhúsum:
- Búðu til þitt eigið deig og glassúr - það gefur mun betri áferð en það sem þú kaupir úti í búð.
- Fletjið deigið út beint á bökunarpappír.
- Setjið deigið í kæli.
- Búið til gat á bakhliðina ef þið viljið koma ljósaseríu fyrir inni í húsinu.
- Ef húsið er eingöngu til skrauts en ekki til að borða, límið það þá saman með límbyssu.
- Skreyttu fletina eins mikið og þú getur áður en þú setur húsið saman.
- Bakaðu nokkrar auka kökur til að eiga ef eitthvað fer úrskeiðis. Það getur verið gott að eiga efni til vara.
- Umfram allt, góða skemmtun og ekki stressa þig - þetta verkefni má taka sinn tíma.