Við höfum áður lýst áhuga okkar og ástríðu á vörunum frá Emile Henry, en hér er mætt splúnkunýtt focaccia form sem við 'verðum að eignast'.
Með stærstu hátið ársins handan við hornið, ætlum við að leyfa okkur að setja enn einn hlutinn á óskalista. Þetta form er algjört æði! Þau eru ekki bara frábær til að baka focaccia brauð í ýmsum útfærslum, heldur henta þau einnig sem grunnt eldfast form - því geggjuð til að ofnbaka grænmeti. Formin og vörurnar frá Emile Henry fást HÉR.