Gjöfin sem ódýrt er að senda á milli landa

Lítill skrautlegur fugl gæti verið jólagjöfin sem þú ert að …
Lítill skrautlegur fugl gæti verið jólagjöfin sem þú ert að leita að. mbl.is/Piego

Þau eru handfylli og meira til, útgjöldin fyrir blessuð jólin. Þá er þetta gjöfin sem getur glatt góðvin ef senda á gjöf á milli landa. 

Við rákumst á þessi sætu pappadýr frá Piego, en þau koma í sléttu umslagi sem vegur aðeins 100 grömm - því tilvalin til gjafa sem þarf að senda. Í umslaginu eru litaðar pappírs- og bómullar arkir sem upplitast síður af ljósi. Eins eru leiðbeiningar um hvernig eigi að setja saman dýrin, en hver og einn partur er merktur svo auðvelt er að setja saman. Þessi fallega hugmynd að gjöf hentar öllum 12 ára og eldri ef við rýnum í erfiðleikastig vörunnar - sem fæst HÉR

mbl.is/Piego
mbl.is/Piego
mbl.is/Piego
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert