Jólasveinahúfur eru skrautlegar og ekki er síður gaman að borða þær. Hér eru þær í bollakökuformi, en eru í raun smákökur. Það er Berglind Hreiðars á Gotter.is sem á heiðurinn að uppskriftinni sem segir að hér séu dæmigerðar súkkulaðibitasmákökur settar í bollakökuform og bakaðar þannig. Kökurnar eru því næst toppaðar með þeyttum vanillurjóma og jarðarberjahúfu sem gerir kökurnar enn hátíðlegri.
Jólasveinahúfur í bollakökuformi
Kökur
- 220 gr. smjör við stofuhita (plús til að smyrja með)
- 150 gr. sykur
- 150 gr. púðursykur
- 2 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 270 gr. hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- 1/2 tsk. salt
- 120 gr. súkkulaðidropar
Jólasveinahúfur
- 35-40 jarðarber
- 400 ml rjómi
- 1 tsk. vanillusykur
- 2 msk. flórsykur
Aðferð:
- Þeytið saman smjör og báðar tegundir af sykri þar til þetta er létt og ljóst. Blandið þá eggjunum og vanilludropum saman við, þeytið áfram og skafið niður á milli.
- Hrærið þurrefnunum saman í skál og blandið saman við smjörblönduna í nokkrum skömmtum, skafið niður á milli.
- Vefjið að lokum súkkulaðidropunum saman við deigið, plastið það næst og kælið í að minnsta kosti klukkustund (líka í lagi að kæla yfir nótt).
- Hitið ofninn á 175 gráðu og smyrjið lítil ál-bollakökuform vel að innan með smjöri (líka upp fyrir kantana).
- Setjið um eina msk. af deigi í hvert hólf og bakið í 10-13 mínútur eða þar til kökurnar fara aðeins að gyllast í köntunum.
- Kælið stutta stund og takið næst úr formunum og leyfið þessu að kólna alveg. Best er að snúa upp á kökurnar til að ná þeim úr eða nota lítinn beittan hníf.
- Skreytið með rjóma og jarðarberjum.
Jólasveinahúfur
- Skerið aðeins að ofan af jarðarberjunum og geymið þau á meðan þið þeytið rjómann. Setjið rjóma, vanillusykur og flórsykur saman í skál og þeytið þar til þetta er stífþeytt.
- Setjið rjómann í sprautupoka og sprautið ofan á hverja köku, leggið næst jarðarberjahatt ofan á rjómann og sprautið síðan litlum rjómadúsk á endann á jarðarberinu.
- Geymið í kæli þar til bera á kökurnar fram.