Elenora Rós er löngu orðin einn þekktasti bakari landsins. Hún var aðeins 19 ára þegar hún gaf út sína fyrstu bók, Bakað, sem naut gríðarlegra vinsælda.
Í ár kom út ný bók eftir Elenoru Rós, Bakað meira, þar sem finna má fjölbreyttar uppskriftir í sex köflum; sunnudagskaffi, formkökur, brauðtertur, smátertur, veislur og eftirréttir.
Í öðrum þætti af Bakað sýnir Elenora Rós Karítas hvernig baka má hina sígildu og ljúffengu sjóvarpsköku. Ekki nóg með að Karítas óskaði sérstaklega eftir kennslu á sjóvarpskökubakstri, heldu var kana einnig vinsælust í skoðanakönnun á meðal fylgjenda Elenoru.
Ljóst er að margir eru til í að mastera hina fullkomnu sjóvarpsköku, enda frábær kaka til að bjóða upp á í kaffiboðinu.
Uppskrift
Þessi er heldur betur klassísk og hlýjar manni um hjartarætur. Hún er alltaf jafn góð og jafn vinsæl. Létt í sér, dúnmjúk og fullkomlega bragðmikil með kókstoppnum sem fer ofan á. Hún er best með ískaldri mjólk og eins einföld og þær gerast.
Kaka
- 4 egg
- 300 g sykur
- 10 g vanilludropa
- 250 g hveiti
- 15 g lyftiduft
- 50 g smjör
- 200 ml mjólk
Kókostoppur
- 100 g smjör
- 200 g púðursykur
- 70 ml mjólk
- 150 g kókosmjólk
Aðferð
- Byrjið á að hita ofninn í 170 °C.
- Þeytið saman egg og sykur þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Bætið síðan vanilludropum saman við.
- Sigtið saman hveiti og lyftiduft og bætið saman við eggja- og sykurblönduna í nokkrum skömmtum og blandið vel á milli.
- Bræðið smjörið við meðalhita. Bætið mjólkinni saman við og hellið blöndunni varlega út í deigið hrærið þar til allt er komið vel saman.
- Hellið deiginu ú skúffukökuform sem er klætt með smjörpappír og spreyjað með matarolíuspreyi.
- Bakið í 30-35 mínútur, eða þar til kakan er orðin gullinbrún.
- Búið til kókostoppinn á meðan kakan bakast.
- Bræðið saman smjör, púðursykur og mjólk í potti við meðalhita. Bætið kókosmjölinu saman við þegar allt er bráðið og blandið kókosmjölinu vel saman við.
- Þegar kakan er tilbúin hellið þið blöndunni jafn yfir kökuna og dreifið úr með spaða.
- Bakið áfram í um 10 mínútur, eða þar til kókostoppurinn fer að gyllast .
- Leyfið kökunni að kólna vel áður en þið lyftið henni úr forminu.