Nýir stafabollar frá Moomin væntanlegir

Nýjir stafabollar frá Moomin.
Nýjir stafabollar frá Moomin. mbl.is/Moomin

Skemmtilegar fréttir fyrir Moomin-aðdáendur, því vinsælu bollarnir eru væntanlegir með bókstöfum og í breyttri útfærslu. 

Það bárust fréttir af bollunum síðastliðið haust og þá til að kynna væntanlegar vörur á markað. Fyrstu bollarnir eru merktir með bókstöfunum L, O, V og E  og fleiri stafir munu fylgja í kjölfarið, og því verður allt stafrófið fáanlegt að lokum. 

Teikningarnar sem skreyta bollana eru handteiknaðar eftir Tove Jansson og teknar úr bókinni Dagbók Múmínpabba og af korti af Múmíndalnum þar sem Tove paraði hvern staf við eina af sínum ástkæru persónum. 

Bollarnir eru örlítið stærri en þeir sem við þekkjum í dag og verða fyrstu fjórir fáanlegir frá miðjum janúar.

mbl.is/Moomin
mbl.is/Moomin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert