Himnesk karamellusúkkulaðihorn með pistasíum

Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal

Meistari Valgerður Gréta Grön­dal eða Valla, eins og hún er alla jafna kölluð, ætlar að leiða okkur í gegnum helgarbaksturinn að þessu sinni. Við erum að tala um heimabökuð horn, fyllt með súkkulaði og pistasíum.

„Um helgar er tilvalin að skella í smá bakstur til að njóta í rólegheitum með fjölskyldunni. Svo ég tali nú ekki um þegar veður hefur verið í verri kantinum og varla hundi út sigandi. Þessi horn eru algjörlega himnesk og henta alveg sérlega vel með góðum kaffibolla. Ég nota suðusúkkulaðið með karamellukurli og sjávarsalti frá Nóa í fyllinguna ásamt pistasíuhnetum og sú blanda er alveg einstök. Þessi horn er vel hægt að frysta og taka nokkur út í einu og hita upp. Ég sé líka alveg fyrir mér að þau væru vinsæl í barnaafmælin eða ferminguna.“

Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal

Himnesk karamellusúkkulaðihorn með pistasíum

  • 600 g hveiti + til að hnoða upp úr
  • 3 tsk. þurrger
  • 1 tsk. salt
  • 50 g sykur
  • 300 ml volgt vatn
  • 70 ml olía
  • 1 egg
  • 150 g Síríus suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
  • 80 g pistasíur
  • 1 egg til að pensla með
  • Saxað súkkulaði til að dreifa yfir hornin

Leiðbeiningar

1. Setjið þurrefnin saman í hrærivélaskál og velgið vatnið upp í 37°C.

2. Setjið krókinn á hrærivélina og byrjið að hræra á lágum hraða. Setjið vatnið rólega saman við og setjið eggið og olíuna út í strax á eftir. Deigið er frekar blautt á þessu stigi en það er allt í góðu lagi. Látið hrærivélina hnoða deigið í 5-7 mín.

3. Takið deigið úr skálinni og hnoðið því saman í kúlu, hérna er ágætt að bæta örlitlu af hveiti saman við. Spreyið olíuspreyi eða penslið smá olíu í skál og setjið deigið í skálina. Hyljið með plastfilmu og látið hefast í 40 mín. Saxið súkkulaðið og pistasíurnar gróft og setjið til hliðar.

4. Takið þá deigið og skiptið í tvennt. Varist að hnoða það of mikið. Stráið smá hveiti á borðplötuna og fletjið deigið út í hring.

5. Skerið hringinn í 8 hluta eins og pítsusneiðar. Setjið súkkulaði og hnetur á breiðasta hlutann og rúllið upp í horn frá breiðasta endanum. Skiljið smávegis eftir af hnetunum til þess að strá yfir hornin.

6. Setjið hornin á bökunarplötu sem klædd hefur verið bökunarpappír. Hitið ofninn í 45°C og úðið að innan með vatni.

7. Setjið plöturnar inn og hefið í ofninum í ca. 30 mín. Takið þá plöturnar útúr ofninum og hitið hann upp í 200°C blástur.

8. Penslið hornin með egginu og stráið smátt söxuðum pistasíum yfir. Bakið í 10-15 mín, tíminn fer eftir ofnum, fylgist bara vel með, þau eru tilbúin þegar þau eru orðin fallega gyllt.

9. Stráið söxuðu súkkulaði yfir bökuð hornin um leið og þau koma útúr ofninum.

Skiptið deiginu í 8 parta og stráið súkkulaði og hnetum …
Skiptið deiginu í 8 parta og stráið súkkulaði og hnetum á breiðari endann. Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal
Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert