„Ég er ekki mikið fyrir heitan hafragraut þó ég þræli honum alveg í mig annað slagið en það er allt aðra sögu að segja af köldum slíkum! Ég elska nefnilega kalda hafragrauta með góðum toppi! Þessi hérna er algjör negla og kaffikeimurinn í honum skemmtileg tilbreyting,“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þenna snilldargraut sem við getum ekki beðið eftir að prófa.
Kaffigrautur
Uppskrift dugar í 1 glas/krús svo margfaldið að vild
Kaldur hafragrautur uppskrift
- 40 g tröllahafrar
- 2 tsk. chiafræ
- 100 ml mjólk að eigin vali
- 20 ml kaffi (styrkleiki eftir smekk)
- 2 msk. hrein jógúrt
- 1 tsk. hunang
- Hrærið öllu saman í glasi/krús, plastið og geymið í ísskáp í að minnsta kosti 4 klukkustundir. Hrærið upp í grautnum og setjið lúxus topp ofan á (sjá að neðan).
Toppur
- Um ¼ banani (í bitum)
- 1 tsk. gróft hnetusmjör (þykkt)
- Ristaðar kókosflögur
- 1 tsk. saxað suðusúkkulaði
- Smá kakóduft
- Þunnt hnetusmjör yfir allt í lokin (gott að nota í flösku sem hægt er að sprauta úr)
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir