Umhverfisvænn valkostur fyrir úrgang

Það eru fleiri og fleiri sem temja sér þann kost að flokka úrgang heima fyrir, enda er margt sem er farið að gera okkur auðveldara fyrir hvað það varðar. 

Við rákumst á þessa moltunnu sem þykir ein sú besta hvað þetta varðar. Moltunnan er úr stáli, rúmar fjóra lítra og kemur með þægilegu handfangi. Í lokinu eru tvær kolasíur sem koma í veg fyrir að lykt berist úr tunnunni og tunnuna og lokið má hvorutveggja setja í uppþvottavél. 

Það sem gerir þessar tunnur meira ákjósanlegar en aðrar er að þær eru ekki úr plasti eins og sjást víða. En lyktiin úr matarafgöngunum á það til að festast í plastinu og loða þar við, sama hversu vel hún er þvegin. 

Fyrir umhverfisvæna, þá má finna moltunnuna hjá versluninni Mistur eða HÉR

mbl.is/Mistur
Moltunna úr stáli - fullkomin fyrir lífrænan úrgang.
Moltunna úr stáli - fullkomin fyrir lífrænan úrgang. mbl.is/Mistur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert