„Hér eru á ferðinni bollur sem byggðar eru á minni uppáhalds köku, súkkulaðiköku með hindberjum og lakkrís. Hún fékk meira segja þann heiður að vera brúðartertan okkar í ágúst á seinasta ári. Svo það má segja að þessar slógu rækilega í gegn en hindber, lakkrís og súkkulaði er alveg frábær bragðbomba,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur og smjör um þessar dýrindis bollur sem hún segir að séu sínar uppáhalds.
Vatnsdeigsbollur
- 250 ml vatn
- 125 g smjör
- 125 g hveiti
- 4 egg
Aðferð:
- Stillið ofn á 180°c. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna.
- Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið.
- Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli.
- Setjið deigið þá í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu, eða notið tvær teskeiðar til setja deigið á plötuna.
- Bakið í 18-20 mínútur.
- Ef þið viljið hafa bollurnar stærri þá er tíminn aukinn í samræmi við það.
Lakkrískrem
- 1 pokar Apollo piparfylltur hjúplakkrís
- ½ dl rjómi
Aðferð:
- Setjið hráefnin saman í pott og látið malla á miðlungshita í 10-20 mín. Þar til að lakkrísinn er að mestu bráðnaður.
- Setjið í skál og leyfið að kólna, gott að setja inn í ísskáp í svolitla stund.
Fylling
- 500 ml rjómi
- 10-15 hindber, frosin
- flórsykur
Aðferð:
- Skerið bollurnar í tvennt. Þeytið rjómann og setjið í sprautupoka, sprautið hring á neðri helming bollunnar og skiljið eftir pláss í miðjunni.
- Takið þá eina teskeið af lakkrískremi og setjið í miðjuna, gott er að setja einn rjómadropa yfir.
- Takið þá frosin hindber og myljið yfir rjómann með því að pressa þau saman svo þau leysast upp í korn.
- Lokið bollunum og sáldrið flórsykri yfir þær með sigti eða tesíu.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir