Drekkur undarlegustu kaffiblöndu síðari ára

Ashton Kutcher.
Ashton Kutcher. Reuters

Þetta er einhvers konar útgáfa af Apresso drykknum þar sem espresso og appelsínusafa er blandað saman en leikarinn Ashton Kutcher greindi frá því í viðtali við Kelly Clarkson á dögunum að hann fengið sér yfirleitt lafþunnt kaffi og skvetti smá appelsínusafa út í það.

Viðbrögð Clarkson voru kostuleg en henni hugnaðist ekki þessi samsetning og svo virðist sem heimsbyggðin sé sammála því hún vakti afar blendin viðbrögð svo vægt sé til orða tekið.

Apresso drykkurinn hefur hins vegar verið vinsæll en þar er lykilatriði að kaffið sé sterkt og gott espresso. Þessi lafþunna blanda er hins vegar ekki málið... en kannski ættum við að prófa áður en við dæmum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert