Við berum hrísgrjón á borð og eigum það til að sjóða of mikið í einu sem endar oftar en ekki í ruslinu. En má frysta hrísgrjón? Stutta svarið er, já.
Hvernig er best að frysta hrísgrjón?
Í fyrsta lagi, þá eru það einungis soðin hrísgrjón sem þú ættir að frysta. Ósoðin hrísgrjón duga í allt að fimm ár og oftast má neyta þeirra eftir síðasta neysludag. Soðin hrísgrjón er best að setja í loftþétt ílát eftir að þau hafa alveg kólnað. Mælt er með að setja þau í kæli innan þriggja klukkustunda eftir að þau hafa verið soðin. Eins má frysta grjónin með t.d. afgangs pottrétti – en þá gildir sama regla varðandi að maturinn hafi kólnað og að setja þá rakleiðis í frysti.
Hvernig er best að þíða hrísgrjón?
Ef þú átt til hrísgrjón í frysti er gott að taka þau út um morguninn og láta inn í ísskáp yfir daginn. Fljótlega leiðin er að setja þau í örbylgjuofninn með örlitlu vatni.
Hver er líftími hrísgrjóna í frysti?
Soðin hrísgrjón duga allt að 2-3 mánuði í frysti. Því getur verið gott ráð að elda umframgrjón og setja í frysti sértu oft með hrísgrjón í matinn. Það tekur tíma að elda hrísgrjón og þá getur reynst þægilegt að eiga aukaskammt að grípa í.