„Ég sá þessa girnilegu uppskrift frá Donnu Hay og ég varð bara að prófa að útbúa mína útgáfu,“ segir matarbloggarinn Hildur Rut á Trendnet um þessa uppskrift. „Vá, vá, vá, hvað þetta er gómsætur réttur. Kjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inn í parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni.“ Nammi!
Kjúklingaréttur með parmaskinku og mozzarella
Fyrir fjóra
- 4 kjúklingabringur frá Rose Poultry
- 16 basilíkulauf
- 8 sneiðar ferskur mozzarella
- Pipar
- 8 sneiðar parmaskinka
- 3 dl panko raspur
- 1,5 dl parmigiano reggiano
- 1/2 dl steinselja, smátt skorin
- Ólífuolía
Aðferð
- Skerið kjúklingabringurnar til helminga.
- Raðið kjúklingnum á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
- Setjið tvö basilíkulauf á hverja sneið og eina sneið af mozzarella. Kryddið með pipar eftir smekk.
- Vefjið parmaskinkunni utan um kjúklinginn.
- Blandið saman panko raspi, parmesan og smátt saxaðri steinselju í skál.
- Dreifið raspinum ofan á kjúklinginn og þrýstið aðeins ofan á.
- Dreifið vel af ólífuolíu yfir kjúklinginn og bakið í 20-30 mínútur við 180°C eða þar kjúklingurinn er bakaður í gegn.
- Berið fram með kartöflubátum og njótið í botn.