Hvað er langt síðan þú þvoðir koddann þinn seinast - ef þú hefur þvegið hann yfir höfuð. Við er samsek í því að vera of slök hvað þetta mál varðar og bætum úr því með þessu einfalda húsráði hér.
Besta leiðin til að þvo koddann
- Skoðið þvottaleiðbeiningarnar varðandi rétt hitastig.
- Setjið koddann inn í þvottavél ásamt 1/2 bolla af natron.
- Hellið þvottaefni í skúffuna á þvottavélinni.
- Hellið 1/4 bolla vetnisperoxíð í sama hólf og þvottaefnið.
- Hellið 1/2 bolla af ediki í hólfið þar sem mýkingarefnið á að fara, ásamt nokkrum dropum af euqalyptus ilmolíu (til að drepa rykmaurana).
- Þvoið koddann og setjið því næst í þurrkara með litlum þurrk-boltum eða ullarkúlum, til að koddinn haldi forminu sínu.