Vinsæll orkudrykkur fæst nú áfengur

Orkudrykkurinn Monster er nú fáanlegur með áfengi.
Orkudrykkurinn Monster er nú fáanlegur með áfengi. mbl.is/Monster Energy

Það eru margir sem fylgja daglegri koffínkeyrslu með orkudrykkjum. En nýjustu fréttir úr þeim heiminum eru þær, að orkudrykkurinn Monster er nú fáanlegur með prósentum.

Það er Coca-Cola sem er framleiðandi Monster’s drykkjanna og kallast nýji áfengi drykkurinn ‘Beast Unleashed’. Drykkurinn kemur í fjórum bragðtegundum - Mean Green, White Haze, Peach Perfect og Scary Berries, og innihalda ekkert koffín, en aftur á móti 6% áfengi.

Vörumerkið Monster hefur verið á markaði í heil 21 ár og því var kominn tími til að hrissta aðeins upp í hlutunum og prófa eitthvað nýtt. Samkvæmt ummælum á samfélagsmiðlum, virðist drykkurinn fara vel í fólk sem segir þá smakkast alveg eins og upprunalegu drykkirnir bara með áfengi. Við hér á matarvefnum getum tekið þar undir eftir að hafa nýverið smakkað á erlendri grundu, en drykkirnir eru eingöngu fáanlegir í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna eins og er.

mbl.is/Monster Energy
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert