Við elskum að hafa hreint á rúmunum.
mbl.is/Ellos
Það er gefiin staðreynd að við svitnum er við sofum - því er gott að venja sig á góðar svefnherbergis rútínur.
Þetta skulum við gera daglega
- Hrisstið sængur og kodda aðeins til eftir nóttina - en best er að gera það utandyra ef veður og tími leyfir.
- Strjúkið yfir lakið með hendinni.
- Ekki búa um rúmið um morguninn, því dýnan er rök eftir nóttina og þarf tíma til að þorna. Leggið því sængurnar til fóta á meðan.
- Best er að nota ekkert rúmteppi á rúmið.
Þetta skulum við gera aðra hverja viku
- Skiptið á sængurverunum.
- Viðrið sængur og kodda áður en þið setjið hreint á rúmið - það drepur rykmaurana.
- Það má einnig leggja sængur og kodda á stól og láta standa við sólríkan glugga til að ‘þorna’.