Hér erum við með dýrindis súpu úr smiðju Lindu Ben sem bragðast hreint dásamlega og smellpassar í kvöldmatinn.
Quinoa grænmetissúpa
- 1 msk. kókosolía bragðlaus frá Muna
- 1 laukur
- 2-3 gulrætur (2 meðal stórar, 3 litlar)
- 1 zucchini
- 1 lítil sæt kartafla
- 5-6 hvítlauksrif
- 400 g dós af hökkuðum tómötum
- 1 1/2 lítri vatn
- 2-3 kjúklingakraftar (líka hægt að nota grænmetis)
- 1 1/2 dl quinoa frá Muna
- 1 tsk. salt
- 1/2 tsk. pipar
- 300 g niðursoðnar kjúklingabaunir frá Muna
- 2 lúkur spínat
- Ferskur parmesan
Aðferð:
- Setjið kókosolíu í stóran pott.
- Skerið laukinn mjög smátt niður, skerið einnig gulrætur, zucchini og sæta kartöflu, setjið ofan í pottinn og steikið þar til laukurinn er farinn af verða glær.
- Pressið hvítlauksrifinn og bætið út í pottinn, steikið.
- Bætið hökkuðu tómötunum út í og blandið saman.
- Hellið vatninu út í pottinn og bætið kjúklingakraftinum út í.
- Setjið quinoa í fínt sigti, skolið það mjög vel og bætið svo út í súpuna.
- Kryddið með salti og pipar, hrærið vel saman og setjið lokið á pottinn. Leyfið þessu að malla í u.þ.b. 25-30 mín og hrærið mjög reglulega í.
- Þegar quinoað er soðið og grænmetið mjúkt í gegn, bætið þá kjúklingabaunum og spínati út í pottinn, hrærið og látið malla í 5 mín.
- Berið fram með ferskum parmesan.