Klassísk húsráð falla seint úr gildi og því tilvalið að deila þeim hér með ykkur.
- Dýfðu lauk í vatn áður en þú skerð hann, þannig spornar þú við grátköstum yfir skurðarbrettinu.
- Prófaðu að láta heitt vatn renna á kökuhnífinn og hann mun skera kökuna þína áfallalaust.
- Notaðu tannþráð til að skera mjúka osta, t.d. brie eða geitaost.
- Til að losna við matarlykt af höndunum skaltu nudda þeim með sítrónusafa og salti.
- Þú getur notað sandpappír til að brýna rifjárn sem er orðið bitlaust.
- Settu appelsínubörk eða brauðsneið saman við púðursykur til að halda honum mjúkum.
- Til að þrífa litla blómavasa eða annað þar sem erfitt er að ná niður á botninn - skaltu setja hrísgrjón, uppþvottalög og smá vatn. Hrisstu síðan vasann til og hrísgrjónin munu sjá um vinnuna að þrífa glerið skínandi á ný.