Hér er á ferðinni hinn fullkomni mánudagsréttur. Ódýr, hollur og einstaklega bragðgóður. Það er Linda Ben sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem við mælum heilshugar með að þið prófið.
Linsubaunaréttur með naanbrauði
- 1 laukur
- 1 msk. smjör
- 4 hvítlauksrif
- 2 cm engifer
- 1½ tsk. paprikukrydd
- 1 tsk. kummín
- 1 tsk. túrmerik
- ¼ tsk. cayennepipar
- 1 tsk. salt
- ¼ tsk. svartur pipar
- 300 g linsubaunir
- 2 dósir (800 g) niðursoðnir hakkaðir tómatar
- 1 l vatn
- 2 dósir (800 ml) kókosmjólk
- 2 kjúklingateningar (eða grænmetisteningar)
- safi úr ½-1 límónu
- smá hreint jógúrt (má sleppa)
Naanbrauð
- 150 ml vatn
- 2 tsk. þurrger
- 2 tsk. sykur
- 50 g smjör
- 330 g gróft hveiti
- ½ tsk salt
- 50 ml (½ dl) hrein AB-mjólk
- 150 g rifinn mozzarella (má sleppa)
- garam masala
- sjávarsalt
Aðferð:
- Skerið laukinn smátt og steikið í stórum potti upp úr smjöri, helst steypujárnspotti ef þið eigið hann til.
- Rífið hvítlauk og engifer út í pottinn og steikið.
- Bætið kryddinu út á og blandið öllu saman.
- Hellið hökkuðum tómötum í pottinn ásamt vatni og kókosmjólk, bætið kjúklingakrafti út í og blandið öllu vel saman.
- Skolið linsubaunirnar vel í fínu sigti og bætið þeim svo út á pottinn. Sjóðið saman í u.þ.b. 30 mín á vægum hita eða þar til allt hefur samlagast, linsubaunirnar orðnar mjúkar og blandan þykk og góð.
- Berið fram með jógúrt og lime.
Naanbrauð aðferð:
- Blandið þurrgeri og sykri út í vatnið.
- Bræðið smjörið og leyfið því að kólna örlítið.
- Setjið hveiti í skál og blandið saman við það gervatni, salti, ab-mjólk og bræddu smjöri. Hnoðið deigið saman.
- Leyfið deiginu að hefast í 30-60 mín.
- Skiptið deiginu og rifna ostinum í sex hluta, ef þið viljið bæta við osti þá hnoðið þið rifna ostinum inn í hvern hluta af deigi og fletjið svo hlutana út.
- Kryddið deigið með garam masala og sjávarsalti.
- Steikið deigið á pönnu upp úr 1 msk af smjöri á hvorri hlið.
- Berið brauðið fram heitt.