Borðar Kornflexið á óvenjulegan hátt

Last of US leikkonan Bella Ramsey, sagði í viðtali á dögunum frá óvenjulegri matarhefð sem hún fullvissar fólk um að sé afbragðs góð samsetning.

Bella, sem er 19 ára gömul, var í tökum er hún einn morguninn stóð frammi fyrir því að það var engin mjólk sem hún gat sett út á Cornflakes morgunkornið sitt - en hún er vön að drekka hafra- eða möndlumjólk. Hún setti því appelsínudjús út á flögurnar sem hún hreinlega elskaði og hefur síðan haldið sig við. Bella er vegan og er mikil baráttukona á þeim vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert