Það er gott að hreyfa sig og koma blóðinu af stað, en við allan svitann sem myndast við átökin þá gefur það augaleið að við þurfum að þvo fötin okkar - því þau eru fljót að taka í sig lyktina.
- Eitt mikilvægt atriði varðandi æfingafötin okkar, er að hengja þau sem fyrst til þerris þó að við náum ekki að þvo þau strax. Alls ekki láta þau liggja í botninum á töskunni þar sem svitalyktin kemur til með að festast enn frekar í efninu.
- Snúið fötunum á röngunni áður en þið setjið þau inn í þvottavél. Það er aragrúi af dauðum húðfrumum sem sitja innan á flíkunum okkar sem við viljum burt.
- Passið að nota ekki of mikið af þvottaefni þó að fötin séu full af svita - því of mikið þvottaefni gerir ekkert gott. Eins eigum við alveg að sleppa mýkingarefninu.
- Best er að þurrka flíkurnar að þvotti loknum, utandyra eða í rými þar sem loftar vel um.