Samlokan sem Hanna elskar

Ljósmynd/Hanna

„Eftir að hafa prófað ýmsar tegundir af hádegisskyndibita er ein samloka sem stendur upp úr,“ segir matarbloggarinn og keramikdrottningin Hanna sem bloggar inn á hanna.is „Hún heitir Dísa Skvísa (frá Hjá Höllu). Vandinn er bara sá að hún fæst ekki á mörgum stöðum og þá er bara eitt ráð í stöðunni og það er að búa til sínar eigin með áhrifum frá Dísu skvísu. Þessa samloku hef ég búið til á morgnana og er hún alveg frábært hádegisnesti.“

„Til þess að fá ekki leið breyti ég stundum álegginu en það er minnsta málið að aðlaga samlokugerðina því sem hverjum og einum finnst best. Mér finnst best að skera allt þunnt. Prima pestó gerir heilmikið fyrir samlokuna og færir hana á nýtt þrep – mæli klárlega með að taka eina svona með í nesti – hún fyllir magann vel og lengi.“

Ljósmynd/Hanna

Samlokugerð … færð á annað þrep

  • Heimilisbrauð eða annað sambærilegt
  • Prima pestó
  • Sneiðar af rauðri papriku – skornar þunnt
  • Salatblöð eins og íssalat
  • Parmaskinka (eða annað kjötálegg)
  • Sneiðar af tómat – skorið þunnt
  • Hugmyndir: avókadó, gúrka, sneið af kjúklingi (upplagt að nota afganga) og sneiðar af soðnu eggi

Aðferð:

  1. Samlokur ristaðar – það má gera með því að setja þær í brauðristina eða hita þær einar og sér á pönnu eða í samlokugrillinu.
  2. Pestóinu smurt á báðar hliðar.
  3. Sneiðar af grænmeti og parmaskinku sett ofan á og samloku lokað.
  4. Samlokan skorin í tvennt og pakkað inn í bökunarpappír.

Hugmynd fyrir veisluna:

Hægt er að skera hringi (ca 4 stk) úr hverju brauði (sem búið er að rista) og útbúa litlar samlokur – sjá mynd fyrir neðan. Það er allt í góðu að búa litlu samlokurnar til aðeins áður – þær þola alveg að standa aðeins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert