Eitt af okkar allra uppáhalds konfekti fyrir jólin eru litríku molarnir frá Quality Street - en nú á dögunum bárust fregnir af nýju súkkulaði frá framleiðandanum.
Nýjustu fréttir herma að súkkulaðiframleiðandinn sé að auka vöruframboði sitt og verður nýja súkkulaðistykkið byggt á tveimur vinsælum molum; þeim fjólubláa og svo græna þríhyrningnum.
Það er enn óljóst hvenær súkkulaðið muni rata í hillurnar, en samkvæmt Nestlé, þá eru þetta ekki eina nýjungin sem er væntanleg á næstu misserum og því spennandi tímar framundan fyrir neytendur.