Áslaug fær sér harðfisk með tabasco-sósu

Áslaug Arna fer ótroðnar slóðir í matarvali.
Áslaug Arna fer ótroðnar slóðir í matarvali. Skjáskot/Instagram

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, fer ótroðnar slóðir í mat­ar­vali. Marg­ir halda sér við sér ís­lensk­an sið og smyrja klípu af smjöri á harðfisk­inn en óhætt er að segja að Áslaug Arna hafi tekið þá venju og kastað henni út um glugg­ann.

Líkt og sjá má á meðfylgj­andi mynd­um gæddi ráðherr­ann sér á ís­lensk­um harðfiski með tabasco-sósu og lét vel af þeirri sam­setn­ingu. Miðað við mynd­efnið sem hún birti í hringrás (e. story) sinni á In­sta­gram í gær, er hún stödd í veiðiferð um þess­ar mund­ir.

End­ur­birti hún hringrás sjón­varps­manns­ins Huga Hall­dórs­son­ar sem full­yrðir að þessi sam­setn­ing „breyti leikn­um“. Nú er um að gera safna í sig kjarki og smakka!



mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert