Stjörnukokkurinn og matreiðslubókarhöfundurinn Danny Mena verður með Pop-up á Tres Locos 26. - 29. október næstkomandi. Mikið verður um dýrðir og það frumlegasta sem boðið verður upp á eru engisprettur.
Danny er einn af vinsælustu mexíkósku matreiðslumönnum í New York og lofaður af miðlunum Vanity Fair, Rolling Stone, Los Angeles Times og The New York Times. Hann er einnig höfundur vinsælu matreiðslubókarinnar Made in Mexico - the cookbook. Danny er þekktastur fyrir hefðbundna mexíkóska matargerð á veitingastöðum sínum Hecho en Dumbo og nú síðast á La Loncheria og Conejo.
Boðið verður upp á matseðil með fimm spennandi réttum að hætti Danny, bæði alla saman í „tasting“ og svo er líka hægt að panta einstaka rétti. Og hægt er að bæta á réttina þurrkuðum engisprettum fyrir þá huguð, sem eru til í að prófa nýja og spennandi bragðupplifun.
Í tilefni komu Danny Mena verður hægt að kaupa matreiðslubókina hans Made in Mexico - the cookbook sem er sannkallað djásn fyrir þá sem elska mexíkóska matargerð.