Stökkir kjúklingaborgarar með sterkri salsasósu

Ómótstæðilegur þessi fíni kjúklingaborgari með sterkri salsasósu. Falleg sjón.
Ómótstæðilegur þessi fíni kjúklingaborgari með sterkri salsasósu. Falleg sjón. Ljósmynd/Snorri Guðmundsson

Stökkir kjúklingaborgarar með sterkri salsasósu, rauðkálssalati og graslaukssósu eiga vel við á þriðjudagskvöldi. Þessir stökku kjúklingaborgarar eru hreint út sagt frábærir með tex-mex stemningu og slá alltaf í gegn. Snorri Guðmundsson ljósmyndari og uppskriftahöfundur á heiðurinn af þessari uppskrift en hann heldur úti uppskriftasíðunni Matur og myndir þar sem hann deilir með fylgjendum sínum uppáhalds uppskriftum. Honum finnst fínt að nota sterka salsasósu til að gefa borgurunum svolítið aukaskot og vera með rauðkálssalatið og graslaukssósuna á móti hitanum og mynda þannig gott jafnvægi. 

Stökkir kjúklingaborgarar með sterkri salsasósu, rauðkálssalati og graslaukssósu

Fyrir 2

  • 2 stk. kjúklingalæri (stór, skinn- og beinlaus)
  • 2 stk. kartöfluhamborgarabrauð
  • 80 g rauðkál
  • 5 g kóríander
  • 2 sneiðar amerískur ostur, þessi appelsínuguli
  • 50 ml AB-mjólk
  • 1 stk. egg
  • 10 g Sriracha-sósa
  • 40 g Ritz kex
  • 40 g Kornflex
  • 10 g taco-krydd (Santa Maria)
  • 2,5 g (1 tsk.) hvítlauksduft
  • 45 ml japanskt majónes
  • 45 ml sýrður rjómi 18%
  • 2 tsk. hvítlauksduft eða eftir smekk
  • 3 g graslaukur
  • Sterk salsasósa, eftir smekk

Aðferð:

  1. Leggið kjúklingalærin á milli tveggja laga af bökunarpappír og berjið lærin með kjöthamri eða t.d. litlum potti til að fletja þau aðeins út.
  2. Aðskiljið eggjarauðuna frá eggjahvítunni (notið bara eggjahvítuna).
  3. Hrærið saman eggjahvítunni, AB-mjólk og Sriracha-sósunni.
  4. Setjið kjúklinginn í jógúrtblönduna og látið marínerast í að minnsta kosti 30 mínútur eða yfir nótt.
  5. Setjið Ritz kexið og Kornflexið í matvinnsluvél ásamt taco-kryddi og hvítlauksdufti og látið vélina ganga í stuttum hrinum þar til áferðin er svipuð og á grófum brauðraspi. Setjið kryddhjúpinn á djúpan disk.
  6. Hitið ofn í 180°C á blæstri.
  7. Látið mesta vökvann renna af kjúklingalærunum og þrýstið þeim svo vel í kryddhjúpinn á báðum hliðum.
  8. Setjið kjúklinginn á ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í um 30-35 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og kryddhjúpurinn orðinn fallega gylltur.
  9. Setjið ostsneiðar á kjúklinginn rétt áður en kjúklingurinn er tilbúinn svo hann bráðni.
  10. Sneiðið rauðkálið eins þunnt og mögulegt er, helst með mandólíni (farið varlega).
  11. Saxið kóríander.
  12. Setjið rauðkál og kóríander í skál ásamt smá ólífuolíu og blandið vel saman.
  13. Sneiðið graslauk.
  14. Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma, hvítlauksdufti og graslauk.
  15. Smakkið til með salti.
  16. Smyrjið brauðin með smá smjöri og ristið á heitri pönnu þar til þau eru fallega gyllt.
  17. Smyrjið graslaukssósu í brauðin og raðið svo kjúklingi, salsasósu og rauðkáli í brauðin.
  18. Berið fram og njótið með þeim sem ykkur þykir bestur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert