Peppað ostasalat sem gargar á þig

Girnilegt ostasalat sem steinliggur í næsta saumaklúbb eða vinnustaðakaffi.
Girnilegt ostasalat sem steinliggur í næsta saumaklúbb eða vinnustaðakaffi. Ljósmynd/Hanna

Heba Sólveig Heimisdóttir sælkeri á heiðurinn af þessu ostasalati og segist þora að fullyrða að þessi þægilega uppskrift sé hagkvæmari og betri en það sem er keypt tilbúið.

„Þeir sem vilja hafa salatið blautara geta sett meira af sýrðum rjóma og majónesi. Með nýbökuðu súrdeigsbrauði er þetta æði og ef halda á bröns er salatið tilvalið á veisluborðið,“ segir Heba.

Ostasalat

  • 1 stk. piparostur, gróft rifinn
  • 1 rauð paprika, fræhreinsuð og skorin í smáa bita
  • 2 harðsoðin egg
  • 1 skarlottulaukur, fínt saxaður
  •  dl majónes
  • 1 dl sýrður rjómi
  • 1 tsk. óreganó
  • ½ tsk. hvítlauksblanda
  • ½ tsk. Worchester-sósa eða nokkrir dropar af sojasósu (má sleppa)
  • ½ tsk. Dijon-sinnep
  • ½ tsk. karrí
  • ½ tsk. saltflögur

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið saman í skál og blandið vel saman.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka