Nú þegar líður að jólum með öllum sínum dásamlegu matarboðum er ekki úr vegi að bjóða upp á uppskrift að alveg stórkostlegu meðlæti. Þetta salat er í senn sparilegt, fallegt og næringarríkt. Ostakubburinn frá Gott í matinn fer svo vel með fersku salatinu, sætunni í eplinu og stökkum kasjúhnetunum. Þetta er ríflegt magn og hentar því vel í stærri boð en það má sannarlega geyma það í kæli og hita upp ef það verða afgangar af því.
Það er Valgerður Gréta Gröndal, matarbloggari á GRGS.is sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem er algjört skyldusmakk.
Heitt rauðkálssalat með ostakubbi, eplum og hnetum
- 3 stk. hvítlauksrif
- 1 stk. blaðlaukur
- 1 stk. rauðkálshöfuð (lítið)
- 1 stk. grænt epli
- 150 g kasjúhnetur
- 2 msk. ólífuolía
- 2 msk. balsamedik
- 200 g ostakubbur frá Gott í matinn
- salt og pipar eftir smekk
- fersk steinselja
Aðferð:
- Byrjið á því að saxa hvítlauk, blaðlauk (20 cm bút), rauðkál og epli.
- Ristið kasjúhneturnar á þurri pönnu þar til þær eru orðnar vel gylltar. Setjið til hliðar.
- Hitið olíu og edik saman á pönnu og bætið hvítlauk út á.
- Steikið hvítlaukinn í 1 mín við meðalhita, gætið þess að brenna hann ekki.
- Setjið blaðlaukinn út á pönnuna og steikið með hvítlauknum í smástund.
- Bætið þá söxuðu rauðkálinu og eplinu saman við.
- Saltið aðeins og piprið og steikið á pönnunni við vægan til meðalhita í 30 mín eða þar til rauðkálið hefur mýkst vel en ennþá stökkt inní.
- Myljið ostakubbinn yfir rauðkálið og hellið hnetunum út á.
- Blandið saman á pönnunni og setjið í fallega skál.
- Stráið smá af ferskri steinselju yfir.
- Berið fram með hverju sem ykkur dettur í hug, fer sérlega vel með hvers kyns hátíðarmat, líkt og kalkún, lambi eða andabringum.
Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal
Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal