Við biðjum ekki um meira fyrir þessi jólin! Hér höfum við mjúka kanilsnúða, fyllta með rauðum jólaeplum og múslí. Uppskriftin kemur frá Lindu Ben, sem bakar snúðana í hringlaga formi með gati í miðjunni - svo úr verður fallegur krans. Að lokum eru snúðarnir skreyttir með rjómaostakremi og trönuberjum.
Mjúkir kanilsnúðar í jólabúning
- 7 g þurrger
- 120 ml. volgt vatn
- 120 ml. volg mjólk
- 1/2 dl hrásykur frá Muna
- 80 gr. brætt smjör
- 1 tsk. salt
- 1 egg
- 450 g fínt spelti
Fylling
- 120 g mjúkt smjör
- 2 dl. sykur
- 2 msk. kanill
- 200 g haframúslí með eplum og kanil
- 1 stórt rautt epli
Glassúr
- 4 msk. smjör
- 400 g flórsykur
- 1/2 tsk. vanilludropar
- 2-3 msk. heitt vatn
- 2 msk. rjómaostur (má sleppa en er voðalega gott)
Aðferð:
- Byrjið á að setja volgt vatn og volga mjólk ásamt gerinu í litla skál og hrærið smá til að þurrgerið blotni.
- Setjið sykur, smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
- Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið u.þ.b. 50 gr. eftir og hellið gerblöndunni saman við. Hnoðið deigið saman þangað til að allt hefur blandast vel saman. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt, setjið þá restina af hveitinu saman við.
- Látið deigið hefast í 1-1,5 klukkustund eða þangað tl deigið hefur tvöfaldast í stærð.
Fylling
- Þegar deigið hefur hefað sig, dreifið þá smá hveiti á borðið og fletjið út deigið í sirka 20x40 cm flöt.
- Blandið saman mjúku smjöri, sykri og kanil í skál og blandið saman. Smyrjið á deigið.
- Dreifið múslíinu yfir.
- Skerið epli í litla bita og dreifið yfir.
- Rúllið deiginu upp frá 40 cm endanum í lengju og skerið svo í 8 bita.
- Smyrjið hringlaga form og raðið snúðunum ofan í formið. Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í sirka 30 mínútur.
- Stillið ofninn á 175 gráður, á undir og yfir hita. Bakið snúðana í 35-40 mínútur eða þar til þeir eru orðnir fallega gylltir á litinn.
Glassúr
- Á meðan snúðarnir eru í ofninum er gott að útbúa glassúrið. Bræðið smjörið í potti og bætið flórsykri saman við og hrærið vel.
- Setjið vanilludropa út í ásamt heitu vatni. Best er að setja vatnið hægt út í og hræra vel á eftir hverja skeið. Setjið 2 skeiðar ef þið viljið sleppa rjómaostinum, annars 3 msk. Hrærið rjómaostinum saman við.
- Smyrjið svo glassúrinu yfir í því magni sem þið viljið.
Mjúkir kanilsnúðar eru akkurat það sem okkur vantar á þessari aðventu.
mbl.is/Linda Ben