Hér erum við með dýrindis eftirrétt úr smiðju Beglindar Hreiðars á Gotteri.is sem ætti að hitta í mark á hverju heimili. Brownie stendur auðvitað alltaf fyrir sínu en sérrírjóminn tekur efirréttinn upp á næsta stig og stráir yfir hann hátíðlegum lekkerheitum. Ferskir ávextinir toppa síðan samsetninguna og úr verður sáraeinfaldur eftirréttur sem allri elska!
Brownie með sérrírjóma og berjum
Brownie-kaka
- 1 pakki Royal-búðingur með súkkulaði (duftið)
- 70 g hveiti
- ½ tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 120 g brætt smjör
- 130 g púðursykur
- 2 egg
- 1 tsk. vanilludropar
- 80 g súkkulaðidropar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Klæðið um 20 cm smelluform að innan með bökunarpappír og úðið það með matarolíuúða.
- Hrærið búðingsdufti, hveiti, matarsóda og salti saman í hrærivélarskálinni.
- Þeytið næst brætt smjör, púðursykur, egg og vanilludropa saman í annarri skál og blandið rólega saman við þurrefnin. Skafið niður á milli og hrærið aðeins stutta stund.
- Að lokum má vefja súkkulaðidropunum saman við með sleikju og hella í formið.
- Bakið síðan í 22-25 mínútur og leyfið kökunni að kólna til fulls áður en þið setjið rjóma og ber ofan á hana.
Sérrírjómi og skraut
- 250 ml rjómi
- 1 msk. sérrí
- 2 msk. flórsykur
- Jarðarber
- Hindber
- Brómber
Aðferð:
- Setjið rjóma, sérrí og flórsykur í hrærivélarskálina og þeytið þar til rjóminn er stífur. Smyrjið sérrírjómanum yfir kökuna og raðið berjum þar ofan á.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir