Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er á batavegi eftir að hafa fengið sýkingu í fótinn. Í dag var hann í Nike-strigaskóm á báðum fótum þegar hann tók við gjöf frá Terry Branstad fylkisstjóra Iowa. Bandaríska beikonbræðralagið, sem stendur að hátíðinni Blue Ribbon Bacon Festival, í Des Moines í Iowa færðu Sigmundi Davíð gjöfina fyrir hans hönd en þeir eru heiðursgestir á Beikonhátíðinni sem haldin verður á Skólavörðustígnum á morgun.