Íslenska sumarið er formlega hafið! Við erum byrjuð að sjá tveggja stafa hitatölur, sú gula er í kortunum og við getum farið að hlakka til þess að ferðast, stunda útivist og njóta alls þess besta sem landið okkar hefur upp á að bjóða.
Núna er fullkominn tími til að laga aðeins til í garðinum, á pallinum eða svölunum og gera útisvæðið extra notalegt fyrir sumarið. Á óskalista vikunnar finnur þú því tíu hluti sem munu gleðja þig og þína í sumar!
Það getur stungið í stúf að vera með ljóta garðslöngu í vel hirtum og fallegum garði. Þá kemur sér vel að geta splæst í lúxusgarðslöngu í fallegum lit sem mun ekki bara gera vinnuna í garðinum skemmtilegri heldur einnig fegra svæðið!
Ef það er eitthvað eitt sem mun nýtast okkur sem erum búsett á klakanum sérstaklega vel þá er það fallegur og góður hitalampi. Njóttu þess að geta setið langt fram eftir nóttu úti í garði, á pallinum eða svölunum með þessum stílhreina hitalampa frá IKOHS.
Hverjum hefði getað dottið það í hug að plöntuskæri gætu verið falleg? Danska hönnunarhúsið Audo Copenhagen gaf nýverið út samstarfslínu með spænska verkfæraframleiðandanum Pallarés þar sem gæði og fegurð mætast.
Auðveldasta leiðin til þess að skapa notalega stemningu með lítilli fyrirhöfn er líklegast að festa kaup á fallegu hengirúmi – það er eitthvað svo kósí við það!
Það þurfa allir að eiga fallega garðhanska til að nota í garðinum, en þessir ættu að falla vel í kramið hjá fagurkerum landsins.
Það þarf varla að útskýra hvers vegna þessi stóll er ofarlega á óskalista margra fagurkera – hönnunin segir allt sem segja þarf!
Það er fátt betra en að borða góðan mat undir berum himni á fallegum sumardegi. Þá er gott að eiga góða salatskál eins og þessa, en hún er gerð úr akrýl plasti þó hún líti út fyrir að vera úr gleri. Skálin er létt og þolir mun meira en þessar hefðbundnu salatskálar sem flestir eiga upp í skáp. Svo er líka hægt að blanda í hana góðan sumardrykk eða jafnvel bollu!
Ef þú vilt gera pallinn eða svalirnar extra kósí og flottar þá hittir þessi fallega motta beint í mark!
Þetta flotta skilrúm frá IKEA er fullkomið til að stúka af ákveðin svæði og skapa notalega stemningu.
Það er ómissandi að vera með fallegar plöntur á útisvæðinu. Það er hins vegar enn betra ef þær eru í fallegum pottum!