Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir er gestur Heimilislífs þessa vikuna en hún keypti sína fyrstu íbúð fyrir um tveimur árum í 101 Reykjavík. Þar býr hún ásamt dóttur sinni en annar sonur hennar býr hjá pabba sínum og elsti sonurinn er fluttur að heiman.
Hún segist lifa mjög rólegu lífi á Íslandi en svo hressist tilveran örlítið þegar hún er í Búlgaríu en hún býr á báðum stöðum.
Í þættinum ræðir hún um líf sitt og störf og dans svörtu rósanna.