Heimilið breyttist þegar Sara flutti inn

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Ásgrím­ur Geir Loga­son leik­ari og hlaðvarps­stjarna býr í fal­legri íbúð í Kópa­vog­in­um ásamt börn­un­um sín­um tveim­ur og kær­ustu sinni. Ásgrím­ur, eða Ási eins og hann er kallaður, held­ur úti hlaðvarpsþætt­in­um Betri helm­ing­ur­inn þar sem hann tek­ur viðtöl við hjón og pör. Hlaðvarpið hef­ur notið mik­illa vin­sælda sem kem­ur ekki á óvart því fólk hef­ur tak­marka­laus­an áhuga á sam­skipt­um kynj­anna.

    Ási keypti íbúðina 2019 með fyrr­ver­andi kær­ustu og barn­s­móður. Þegar þau fóru hvort í sína átt­ina varð hann eft­ir í íbúðinni.

    „Ég var mjög hepp­inn að vera hérna áfram. Ég á tvö börn og það er erfitt að finna góða fjög­urra her­bergja íbúð,“ seg­ir Ási sem er upp­al­inn í Kópa­vog­in­um og vill helst ekki ann­ars staðar vera. 

    Svo kom þar að hann kynnt­ist konu og seg­ir Ási að heim­ilið hafi breyst mikið eft­ir að hún flutti inn. Ástin í líf­inu heit­ir Sara Davíðsdótt­ir og er einkaþjálf­ari og flug­freyja. 

    „Ég breytti um fíl­ing eft­ir að Sara flutti inn,“ seg­ir Ási sem er al­sæll með lífið í Kópa­vog­in­um. Hann seg­ir að það séu for­rétt­indi að búa svona miðsvæðis en áður bjó hann á Völl­un­um í Hafnar­f­irði.

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert

    Spurt og svarað

    húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

    sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

    einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

    endurskoðandi svarar spurningum lesenda

    Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

    hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

    svarar spurningum um lögfræðileg mál

    lýtalæknir svarar spurningum lesenda