Þorrablót stjörnunnar var haldið í Mýrinni í Garðabæ í gærkvöldi. Slegist er um miðana ár hvert enda þykir þetta þorrablót vera eitt mesta stuðkvöld ársins. Í ár var engin undantekning og var ákaflega vel mætt.
Almar Guðmundsson var veislustjóri og svo sáu Hrafnkell og Pálmar um að keyra upp stuðið eða þangað til Páll Óskar mætti og spilaði sín heitustu lög. Eins og sést á þessum framúrskarandi myndum Eggerts Jóhannssonar ljósmyndara mættu allir kátir og glaðir.
Frétt af Smartlandi: Þorrablót Stjörnunnar 2016