Onlyfans stjarnan Ósk Tryggvadóttir sýndi leyndan hæfileika þegar hún sýndi listir sínar sem eldgleypir í opnun kosningamiðstöðvar Framsóknar í Reykjavík norður í Grafarvogi á laugardag. Ósk er hvað þekktust fyrir að selja efni á síðunni Onlyfans en hefur greinilega mörgum hæfileikum gædd.
Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur og hlaðvarpsstjarna kom einnig í partí Framsóknar og gerði allt vitlaust í búningi hvítvínskonunnar. Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson tryllti svo lýðinn af sinni einstöku snilld.