Þórdís Lóa Þórhallsdóttir ræddi við helstu fjárfesta landsins

Mikið líf og fjör ríkti á Fjárfestadeginum.
Mikið líf og fjör ríkti á Fjárfestadeginum. Samsett mynd

Fjárfestadagur viðskiptahraðalsins Hringiðu hjá KLAK - Icelandic Startups var haldinn hátíðlegur á dögunum. Forseti borgarstjórnar, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir hélt kröftugt erindi fyrir hátt í 90 gesti, marga af helstu fjárfestum landsins ásamt öðru áhrifaríku fólki úr viðskiptaheiminum, þar sem áhersla var lögð á mikilvægi nýsköpunar. 

Sprotafyrirtækin Arctic Fibers, Circula, EKKÓ, Flöff - textílvinnsla, Í djúpum, Reklotek, RÓ, SeaGrowth og Visttorg vöktu óskipta athygli gesta fyrir kynningar sínar og skýra sýn á hvaða vandamál tengd umhverfismálum fyrirtækin ætla að leysa. 

„Nýsköpun er hluti af sjálfsmynd Reykjavíkur. Sem borg og samfélag stöndum við frammi fyrir fjöldamörgum áskorunum sem krefjast nýrra lausna. Við viljum styðja við góðar hugmyndir sem verða að fyrirtækjum og lausnum morgundagsins. Það er engin spurning að Hringiðu-hraðallinn er frábær viðbót í vistkerfi nýsköpunar í borginni,“ sagði Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar. 

„Hringiða snýst um nýsköpun“

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK Icelandic Startups talaði um sérstöðu Hringiðu þegar hún opnaði fjárfestadaginn. 

„Hringiða snýst um nýsköpun sem hefur jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag og hið svokallaða hringrásarkerfi. Fyrirtækin sem tóku þátt í Hringiðu í ár eru öll með einum eða öðrum hætti að veita gamla línulega hagkerfinu viðspyrnu. En það er ekki einungis af skyldurækni gagnvart umhverfi og náttúru heldur einnig vegna þess að það felast verðmæt tækifæri í að taka þátt í og móta þá umbyltingu sem er fyrir dyrum, þegar allt hið gamla hagkerfi umbreytist og hringrásarhagkerfið tekur við.“

Freyr Eyjólfsson verkefnastjóri fræðslu og kynninga hjá Sorpu var kynnir viðburðarins en hann hefur lengi verið ötulll talsmaður sjálfbærni. 

Bakhjarlar Hringiðu eru Reykjavíkurborg, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Faxaflóahafnir, Terra, Ölgerðin og Samtök iðnaðarins. Samstarfsaðilar Hringiðu eru Rannís, Breið þróunarfélag, Evris, Sjávarklasinn, Grænvangur, Orkuklasinn, Hugverkastofa, F6S og Hringrásarklasinn. 

Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri Hringiðu.
Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri Hringiðu. Ljósmynd/Eygló Gísla
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar Ljósmynd/Eygló Gísla
Fjárfestadagurinn var vel sóttur.
Fjárfestadagurinn var vel sóttur. Ljósmynd/Eygló Gísla
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, Svala Jónsdóttir og Berglind Ómarsdóttir hjá Visttorg
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, Svala Jónsdóttir og Berglind Ómarsdóttir hjá Visttorg Ljósmynd/Eygló Gísla
Fólk hlustaði af mikilli athygli.
Fólk hlustaði af mikilli athygli. Ljósmynd/Eygló Gísla
Sprotar í Hringiðu á góðri stundu
Sprotar í Hringiðu á góðri stundu Ljósmynd/Eygló Gísla
Sigrún Guðjónsdóttir, Alexander Schepsky, Birgitta Ásgrímsdóttir og Martin Uetz hjá …
Sigrún Guðjónsdóttir, Alexander Schepsky, Birgitta Ásgrímsdóttir og Martin Uetz hjá SeaGrowth sem unnu Gulleggið.
Hringrásarklasinn á góðri stundu.
Hringrásarklasinn á góðri stundu. Ljósmynd/Eygló Gísla
Hafrún Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri e1 ásamt Matthildi Marvinsdóttir og Alice Sowa …
Hafrún Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri e1 ásamt Matthildi Marvinsdóttir og Alice Sowa hjá Arctic Fibers. Ljósmynd/Eygló Gísla
Litten Nystrøm og Haraldur Karlsson hjá RÓ.
Litten Nystrøm og Haraldur Karlsson hjá RÓ. Ljósmynd/Eygló Gísla
Luke Hening hjá Reklotek
Luke Hening hjá Reklotek Ljósmynd/Eygló Gísla
Sprotar í Hringiðu.
Sprotar í Hringiðu. Ljósmynd/Eygló Gísla
Sigrún Guðjónsdóttir, Alexander Schepsky, Birgitta Ásgrímsdóttir og Martin Uetz hjá …
Sigrún Guðjónsdóttir, Alexander Schepsky, Birgitta Ásgrímsdóttir og Martin Uetz hjá SeaGrowth sem unnu Gulleggið 2024. Ljósmynd/Eygló Gísla
Sighvatur Lárusson hjá Circula.
Sighvatur Lárusson hjá Circula. Ljósmynd/Eygló Gísla
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir hjá Visttorg og Harpa Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og …
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir hjá Visttorg og Harpa Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og stofnandi Hoobla ehf. Ljósmynd/Eygló Gísla
Hulda Hallgrímsdóttir hjá Reykjavíkurborg Sighvatur Lárusson og Kári Sighvatsson hjá …
Hulda Hallgrímsdóttir hjá Reykjavíkurborg Sighvatur Lárusson og Kári Sighvatsson hjá Circula. Ljósmynd/Eygló Gísla
Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry Capital og Andri Heiðari Kristinsson …
Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry Capital og Andri Heiðari Kristinsson hjá Frumtak Ventures. Ljósmynd/Eygló Gísla
Freyr Eyjólfsson var kynnir viðburðarins.
Freyr Eyjólfsson var kynnir viðburðarins. Ljósmynd/Eygló Gísla
Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry Capital og Andri Heiðari Kristinsson …
Jenný Ruth Hrafnsdóttir hjá Crowberry Capital og Andri Heiðari Kristinsson hjá Frumtak Ventures Ljósmynd/Eygló Gísla
Bala Kamallakharan, fjárfestir og stofnandi Startup Iceland og Ásta Sóllilja …
Bala Kamallakharan, fjárfestir og stofnandi Startup Iceland og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups. Ljósmynd/Eygló Gísla
Hrönn Greipsdóttir framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins
Hrönn Greipsdóttir framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins Ljósmynd/Eygló Gísla
Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri Hringiðu og Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal …
Jenna Björk Guðmundsdóttir verkefnastjóri Hringiðu og Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal verkefnafulltrúi hjá KLAK - Icelandic Startups. Ljósmynd/Eygló Gísla
Hafrún Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri e1 og Andrés Jakob Guðjónsson verkefnastjóri hjá …
Hafrún Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri e1 og Andrés Jakob Guðjónsson verkefnastjóri hjá KLAK - Icelandic Startups Ljósmynd/Eygló Gísla
Fólk var í góðu skapi.
Fólk var í góðu skapi. Ljósmynd/Eygló Gísla
Gísli Gíslason stjórnarformaður Breið þróunarfélags, Valdís Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri Breið þróunarfélags …
Gísli Gíslason stjórnarformaður Breið þróunarfélags, Valdís Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri Breið þróunarfélags og Smári Jósafatsson stofnandi EKKÓ. Ljósmynd/Eygló Gísla
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups.
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups. Ljósmynd/Eygló Gísla
Freyr Eyjólfsson.
Freyr Eyjólfsson. Ljósmynd/Eygló Gísla
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups, Kristín Vala …
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups, Kristín Vala Ragnarsdóttir, Sveinn Gunnarsson, Begga Rist hjá Circula og Kjartan Guðbergsson. Ljósmynd/Eygló Gísla
Begga Rist hjá Í djúpum.
Begga Rist hjá Í djúpum. Ljósmynd/Eygló Gísla
Begga Rist og Sveinn Gunnarsson hjá Í djúpum.
Begga Rist og Sveinn Gunnarsson hjá Í djúpum. Ljósmynd/Eygló Gísla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál