Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson eignaðist son í morgun en var því miður ekki viðstaddur þar sem hann er staddur í Kasakstan þar sem hann spilar í undankeppni EM 2016. Aron Einar er í sambandi með Kristbjörgu Jónasdóttur. Sonurinn lét bíða aðeins eftir sér og kom fimm dögum eftir áætlaðan dag.
KSÍ segir frá þessu á Twitter-síðu sinni í morgun.