Fékk 1000-kall fyrir að leika í Stellu í orlofi

Ragnheiður Elín Árnadóttir var stadisti í kvikmyndinni Stellu í orlofi. …
Ragnheiður Elín Árnadóttir var stadisti í kvikmyndinni Stellu í orlofi. Hér sést hún þar sem hún situr fyrir aftan Salómon í flugvélinni.

„Það er nú ekki hægt að kalla þetta hlutverk. Handboltaliðið mitt var fengið í statistahlutverk - vorum sum sé farþegar í flugvélinni þegar Salómon var að koma til landsins og þá sat ég fyrir aftan hann. Svo „lékum“ við annað hlutverk líka. Vorum farþegarnir í vélinni þegar Gísli Rúnar uppgötvaði að það væri verið að veiða upp úr fiskeldinu hjá honum. Það krafðist óneitanlega meiri leikrænna tilburða þar sem við þurftum að kastast til og frá í vélinni,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra í samtali við Smartland Mörtu Maríu. Hún sagði jafnframt að hún og Edda Björgvinsdóttir hefðu oft grínast með það að þær hefðu „leikið“ saman í bíómynd. Landsmenn fengu svo að sjá dýrðina í kvöld þegar Stella í orlofi var sýnd á RÚV. 

„Þetta tók ábyggilega 10 tíma og eru kannski samtals sjö sekúndur. En við fengum 1000 krónur og miða á frumsýningu í laun. Vorum alsæl,“ segir hún. 

Hjónin Guðjón Ingi Guðjónsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Hjónin Guðjón Ingi Guðjónsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda