Lilja Sigurlína Pálmadóttir og Baltasar Kormákur Baltasarsson eru skilin að borði og sæng. Hjónin hafa verið áberandi síðan þau hnutu hvort um annað fyrir rúmum 20 árum; hún sem listamaður og hrossaræktandi og hann sem leikari og leikstjóri sem hefur náð hvað lengst á sínu sviði erlendis. Nú er komið að leiðarlokum þessa ferðalags þeirra sem hjón og halda þau hvort í sína áttina.
Hjónin hafa búið saman í reisulegu húsi í miðbænum og líka í Skagafirði ásamt stórum barnahópi.
Smartland óskar þeim góðs gengis í lífsins ólgusjó!