Í dag virðist annar hver maður vera með húðflúr en sumir bera þau betur en aðrir. Meðfylgjandi er listi yfir nokkra Íslendinga sem skarta skrautlegum og flottum húðflúrum og gera það vel.
Rapparinn Emmsjé Gauti er mikill húðflúráhugamaður og skartar nokkrum stærðarinnar tattúum. Hann er meðal annars með flúr af Kjarval, Ragnheiði Jónsdóttur, Jóni Sigurðssyni, og Jónasi Hallgrímssyni á upphandleggnum. Svo er hann með eitt flúr tileinkað móður sinni líka, sætt.
Listakonan Sara María Júlíudóttir er ein flúraðasta kona landsins. Húðflúrin eru flest öll ævintýraleg og litrík.
Tónlistarmaðurinn Sindri Már Sigfússon er með nokkur húðflúr á handleggjunum, öll eru þau einstök og virðast vera teikningar eftir hann sjálfan.
Söngkonan Svala Björgvins er með svokallað „sleeve“ og það fer henni virkilega vel. Húðflúrið er litríkt og í asískum stíl.
Gísli Pálmi er þakinn húðflúrum en er hvergi nærri hættur því hann er tíður gestur á húðflúrstofum bæjarins.
Húðflúrlistakonan Ólafía Kristjánsdóttir er með tattú um allan líkamann sem hún hefur fengið sér víða um heim, meðal annars í Miami og London. Flúrin fara henni einstaklega vel.
Árið 2010 lét Jón Gnarr flúra á sig skjaldarmerki Reykjavíkur en stuttu seinna fékk hann sýkingu í tattúið. Það reddaðist þó og flúrið lítur vel út.
Listakonan Sunna Ben er með einstaklega svöl tattú, meðal annars á handleggjum og fótleggjum. Við erum að tala um tígrisdýr, kisur, blóm og portrettmynd svo eitthvað sé nefnt!
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er eflaust einn best flúraði fótboltakappi í heimi. Í júní fjallaði Smartland Mörtu Maríu um flúr Arons Einars en þau hafa öll ákveðna merkingu og tengjast nokkur heimahögum Arons Einars á Akureyri. Fyrirliðinn hefur verið duglegur að deila myndunum af flúrunum á Instagram-síðu sinni.
Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, er þakinn húðflúrum. Flúrin eru bæði í lit og svört og ber Krummi þau vel.
Hjúkrunarfræðingurinn og blaðamaðurinn Ragnheiður Eiríksdóttir er með nokkur skemmtileg húðflúr. Flúrin eru flest á handleggjum Ragnheiðar í hinum ýmsu litum og óhætt er að segja að Ragnheiður beri þau vel.
Listamaðurinn Elli Egilsson er með húðflúr víða um líkamann, meðal annars á hálsinum, og tekur sig vel út með þau.