Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, kvæntist Kristbjörgu Jónasdóttur, fitness-drottningu, á laugardaginn. Hann var í sérsaumuðum smóking frá Herragarðinum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Aron Einar er í sérsaumuðum fötum því allir strákarnir í landsliðinu í fótbolta klæddust sérsaumuðum jakkafötum frá Herragarðinum þegar þeir héldu á EM í knattspyrnu síðasta sumar.