Eva komin aftur til Fylkis

Eva Núra Abrahamsdóttir í leik með Fylki í fyrra.
Eva Núra Abrahamsdóttir í leik með Fylki í fyrra. mbl.is/Styrmir Kári

Knattspyrnukonan Eva Núra Abrahamsdóttir er komin til liðs við Fylki á nýjan leik en hún hefur verið í Danmörku það sem af er árinu og ekkert spilað með Árbæjarliðinu í Pepsi-deildinni.

Eva er 23 ára  gömul og hefur átt fast sæti í Fylkisliðinu undanfarin ár en hún hefur leikið með því 79 leiki í úrvalsdeildinni og skorað 2 mörk. Hún á einn A-landsleik að baki, vináttulandsleik snemma á síðasta ári, og lék 12 leiki með U17 ára landsliðinu á sínum tíma.

Fylkir er í næstneðsta sæti deildarinnar en hefur nú fengið fjóra nýja leikmenn í EM-hléinu. Það eru bandarísku leikmennirnir Kaitlyn Johnson og Brooke Hendrix og Hollendingurinn Maruschka Waldus sem kemur frá Twente.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert