María Björg í Fylki

Fylkiskonur unnu Inkasso-deildina á síðustu leiktíð.
Fylkiskonur unnu Inkasso-deildina á síðustu leiktíð. mbl.is/Eggert

Hin 17 ára gamla María Björg Fjölnisdóttir, sem lék með Fylki í sumar sem lánsmaður frá Breiðabliki, hefur skrifað undir samning við Fylki sem gildir til næstu tveggja ára.

María Björg, sem á að baki 14 leiki fyrir U17-landslið Íslands, hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar spilað 58 mótsleiki í meistaraflokki. Hún lék 20 leiki með Fylki síðasta sumar þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild á nýjan leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert