Pedersen ekki með Val

Patrick Pedersen
Patrick Pedersen mbl.is/Hari

Danski miðherjinn Patrick Pedersen er ekki í leikmannahópi Vals gegn Fjölni í Pepsí Max deildinni í knattspyrnu í kvöld. 

Pedersen fór út af meiddur í síðasta leik gegn Fylki eftir 75 mínútur og þau meiðsli virðast ætla að draga dilk á eftir sér. Hann er í hópi markahæstu manna deildarinnar með sex mörk fyrir Valsliðið í deildinni á þessu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert