Ásgeir Börkur í raðir ÍR

Ásgeir Börkur Ásgeirsson er orðinn leikmaður ÍR.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson er orðinn leikmaður ÍR. Ljósmynd/ÍR

Knattspyrnumaðurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson hefur skrifað undir samning við ÍR og mun hann leika með liðinu á næstu leiktíð.

Börkur kemur til ÍR frá uppeldisfélaginu Fylki, en hann hjálpaði Fylkismönnum að komast aftur upp í efstu deild á síðustu leiktíð.

Miðjumaðurinn hefur einnig leikið með Selfossi og HK hér á landi. Alls hefur hann spilað 196 leiki í efstu deild og skorað í þeim tvö mörk.

ÍR leikur í 2. deildinni á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert