Eitt leikjamet féll í 6. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta og reyndur varnarmaður skoraði sitt fyrsta mark í deildinni í fimm ár.
Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörnunni skoraði sitt 30. mark í efstu deild, þegar Garðabæjarliðið vann Keflavík, 3:0. Þar af skoraði hún 11 í deildinni á síðasta tímabili þegar hún varð markadrottning deildarinnar.
Anna María Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar skoraði sitt fyrsta mark í fimm ár í sama leik þegar hún kom Garðbæingum yfir strax á 5. mínútu. Anna skoraði síðast gegn Þór/KA á Akureyri í júlí 2018. Þetta var hennar þriðja mark í deildinni á ferlinum en Anna er þriðja leikjahæst hjá Stjörnunni frá upphafi með 183 leiki í efstu deild.
Dröfn Einarsdóttir setti nýtt leikjamet hjá Keflavík í efstu deild í leiknum við Stjörnuna. Þetta var hennar 60. leikur fyrir félagið í deildinni en Elísabet Ester Sævarsdóttir lék 59 leiki fyrir Keflavík í deildinni á árunum 2005 til 2009.
Sara Montoro skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild þegar FH vann Þór/KA, 2:0, á Akureyri. Hún kom til FH frá Fjölni fyrir þetta tímabil og hefur skorað 37 mörk fyrir Grafarvogsliðið í 1. og 2. deild.
Una Móeiður Hlynsdóttir úr Þór/KA lék sinn fyrsta leik í efstu deild gegn FH.
Karitas Tómasdóttir, miðjumaður Breiðabliks, sleit hásin gegn Selfossi, í sínum 130. leik í efstu deild, og spilar væntanlega ekki meira á tímabilinu. Karitas er fjórða leikjahæst hjá Selfossi í efstu deild með 92 leiki.
Úrslitin í 6. umferð:
ÍBV - Tindastóll 1:2
Þróttur R. - Valur 1:2
Selfoss - Breiðablik 0:3
Stjarnan - Keflavík 3:0
Þór/KA - FH 0:2
Markahæstar:
4 Andrea Rut Bjarnadóttir, Breiðabliki
4 Sandra María Jessen, Þór/KA
3 Bryndís Arna Níelsdóttir, Val
3 Freyja Karín Þorvarðardóttir, Þrótti
3 Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Breiðabliki
3 Melissa Garcia, Tindastóli
3 Shaina Ashouri, FH
3 Tanya Boychuk, Þrótti
3 Taylor Ziemer, Breiðabliki
Næstu leikir:
6.6. Keflavík - ÍBV
6.6. Valur - Þór/KA
6.6. FH - Selfoss
6.6. Tindastóll - Þróttur R.
7.6. Breiðablik - Stjarnan