„Andinn er rosalega góður,“ sagði Borghildur Sigurðardóttir, fyrrverandi varaformaður KSÍ, í samtali við mbl.is í Wroclaw í Póllandi í dag.
Borghildur verður í stúkunni þegar Ísland mætir Úkraínu í úrslitum umspilsins um sæti í lokakeppni Evrópumótsins 2024 í Wroclaw í Póllandi klukkan 19:45 að íslenskum tíma.
Hún sat lengi í stjórn KSÍ og hefur farið í ófáar landsliðsferðirnar til þess að fylgja eftir landsliðum Íslands í öllum aldursflokkum.
„Þetta er rólegra núna en í mörgum ferðum sem ég hef farið í,“ sagði Borghildur.
„Stemningin er hins vegar virkilega góð og það ríkir mikil bjartsýni á meðal Íslendinganna,“ sagði Borghildur meðal annars en nánar er rætt við hana í myndbandinu hér fyrir ofan.